27.03.1924
Neðri deild: 34. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1128 í B-deild Alþingistíðinda. (340)
74. mál, fjáraukalög 1923
Frsm. (Þórarinn Jónsson):
Jeg gleymdi að geta þess áðan, að auk þess kostnaðar, sem jeg gat um áðan, þá hafði nefndin með sjer skrifara, sem 1000 kr. hafa verið greiddar. — Viðvíkjandi því, sem hv. 2. þm. Rang. (KlJ) kvaðst ekki geta gefið frekari upplýsingar í málinu, þá vil jeg geta þess, að jeg hafði aðvarað fyrverandi forsætisráðherra (SE) um það, að þetta myndi nú koma til umr., svo að hann gæti gefið þeim upplýsingar, sem hjer eru til andsvara. Nú hafa ekki komið fram aðrar upplýsingar en þessi um reikning Einars Arnórssonar, að eitthvað muni verða endurgreitt af honum. Jeg lít svo á, að þessir menn eigi ekki að fá eyri meira en um var samið. Það, sem fram yfir er, á að endurgreiðast. Að minsta kosti heldur fjvn. fast við þá kröfu.