27.03.1924
Neðri deild: 34. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (341)

74. mál, fjáraukalög 1923

Forsætisráðherra (JM):

Jeg hefi aðeins sjeð reikning frá Einari Arnórssyni, og get því ekki svarað frekar í þessu máli, enda hefi jeg ekki verið aðvaraður um, að jeg yrði spurður um þetta. Jeg veit ekkert um það, hvað hinir nefndarmennirnir hafa fengið, því að auðvitað var það alt um garð gengið áður en þessi stjórn tók við. Verð jeg yfirleitt að líta svo á, að þetta mál sje mjer með öllu óviðkomandi.