27.03.1924
Neðri deild: 34. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í C-deild Alþingistíðinda. (3498)

93. mál, botnvörpukaup í Hafnarfirði

Jakob Möller:

Hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) hefir algerlega tekið af mjer ómakið í þetta sinn. Jeg ætlaði aðeins að bera af mjer á sama hátt ámæli hv. 1. þm. N.-M. (HStef). Jeg álít, að þetta mál sje alls ekki sambærilegt við till. þá um dúkaverksmiðju, sem kom til atkv. í gærdag.