03.04.1924
Efri deild: 38. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1132 í B-deild Alþingistíðinda. (351)
74. mál, fjáraukalög 1923
Frsm. (Einar Árnason):
Það mun vera svo, að húsameistari hafi áður haft fastan aðstoðarmann með launum í fjárlögunum, en ef jeg man rjett, þá var hann feldur niður á þinginu 1922. Mun meiningin með því hafa verið sú, að ekki kæmi annar kostnaður í fjárlögin hvað þessa starfsemi snertir en laun húsameistara eins. Hv. 1. landsk. (SE) hefir skýrt nokkuð, hverjar ástæður muni vera fyrir því, að húsameistari hefir ekki komist yfir störf sín einn. Hefir það sjerstaklega verið vegna starfa hans við Landsbankabygginguna nýju. Kom það fram hjá hv. þm., að þetta mundi verða endurgreitt, og telur nefndin það vel farið. Ef einstakir menn eða stofnanir fá húsameistara til að vinna eitthvað fyrir sig, þá er sjálfsagt, að það, sem inn kemur fyrir það, fari til þess að greiða þann aukakostnað, sem að slíkum störfum leiðir. — Viðvíkjandi greiðslunni til landlæknis, þá skal jeg geta þess, að jeg minnist ekki, að hún kæmi sjerstaklega til tals hjá fjvn. Það mun upphaflega hafa verið búist við því, að kostnaðurinn við utanför hans yrði greiddur af Heilsuhælisfjelaginu, en svo hefir ekki orðið að fullu, og því hafa þessar eftirstöðvar verið greiddar úr ríkissjóði, og hefir nefndin ekkert við það að athuga.