28.03.1924
Neðri deild: 35. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1249 í B-deild Alþingistíðinda. (509)

18. mál, afhending á landi til kirkjugarðs í Reykjavík

Frsm. minni hl. (Jón Kjartansson):

Eins og hv. deildarmenn muna, var þetta frv. til meðferðar í allshn. og klofnaði hún um það. Við tveir nefndarmenn vildum fylgja frv., þó með nokkrum breytingum um að lækka legkaupið. Þar sem hv. Ed. hefir fært frv. aftur í sinn fyrri búning, höfum við tveir orðið ásáttir um að falla frá breytingum okkar og leggja til, að það verði samþykt óbreytt eins og það kemur nú frá hv. Ed. Við teljum ekki ástæðu til að hrekja málið aftur á milli deildanna, þó að við hefðum talið gjaldið sanngjarnara eins og brtt. okkar fóru fram á.