25.03.1924
Neðri deild: 32. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2381 í B-deild Alþingistíðinda. (57)

Mannaskipti í nefndum

Forseti (BSv):

Mjer hefir borist svo hljóðandi brjef frá Íhaldsflokknum:

„Íhaldsflokkurinn tilkynnir hjer með, að hann hefir ákveðið fyrir sitt leyti, að þessir menn starfi í nefndum fyrst um sinn í stað ráðherranna Magnúsar Guðmundssonar og Jóns Þorlákssonar:

Í fjárveitinganefnd á stað M. G.:

Sigurjón Jónsson, þm. Ísaf.,

í fjárhagsnefnd í stað J. Þ.:

Björn Líndal, þm. Ak.,

í allsherjarnefnd í stað J. Þ.:

Árni Jónsson, 2. þm. N.-M.

Þetta tilkynnist hjer með.

f. h. Íhaldsflokksins

Jón Þorláksson.“