25.03.1924
Neðri deild: 32. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2382 í B-deild Alþingistíðinda. (59)

Mannaskipti í nefndum

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg veit ekki betur en að sú venja hafi jafnan ríkt hjer í neðri deild, að flokkar mættu sjálfir fylla í skörðin í nefndum eftir sína eigin menn. Hinsvegar mun kosning venjulega hafa farið fram í Ed. Jeg sje enga ástæðu til að bregða út af þessu hjer í deildinni. Annars segir brjefið ekki annað meira en að flokkurinn hafi ákveðið þetta fyrir sitt leyti.