26.04.1924
Neðri deild: 56. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í B-deild Alþingistíðinda. (676)

5. mál, vegalög

Þórarinn Jónsson:

Jeg vil aðeins geta þess, að verði vegur lagður þarna eftir okkar daga, þá verður höfn komin í Hindisvík á Vatnsnesi, og þá verður vegurinn lagður meðfram Hópinu og yfir Víðidalsá, þar sem hún fellur í Hópið, og norður Vatnsnesið.