06.05.1924
Efri deild: 65. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2387 í B-deild Alþingistíðinda. (70)

Starfslok deilda

forseti (HSteins):

Áður en jeg slít þessum síðasta fundi deildarinnar vil jeg þakka hv. þdm. góða samvinnu á þessu þingi, bæði innan nefnda og við mig sem forseta þessarar hv. deildar. Óska jeg utanbæjarþingmönnum góðrar ferðar og ánægjulegrar heimkomu, en öllum háttv. þdm. vil jeg óska góðra og gleðilegra komandi tíma.