04.03.1924
Neðri deild: 14. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1426 í B-deild Alþingistíðinda. (728)
55. mál, löggilding verslunarstaðar í Hindisvík
Flm. (Þórarinn Jónsson):
Ekki er það vanalegt, að stormur standi um slík smámál og þetta frv. er, en þó þykir mjer hlýða að gera nokkra grein fyrir, hvers vegna það er fram komið.
Fyrir hjer um bil eða rúmum 20 árum var löggilt höfn sú á Vatnsnesi, er Lambhúsavík heitir, Sagði þá einn þingmaður í skopi, að nú væri verið að löggilda lambhúsin á Vatnsnesi, er honum þótti of skamt á milli verslunarstaðanna. En Lambhúsavíkin, sem liggur innanvert á austanverðu Vatnsnesinu, hefir aldrei verið neitt notuð að ráði, því að þegar kom í ljós, að þar er ekkert afdrep nema helst í vestanátt. Komu því skip þar örsjaldan, og nú orðið aldrei. Helst ber það við, að þangað er flutt þungavara á mótorbátum frá Blönduósi og tekið þar á móti landvöru, ull, sem þangað er aftur sótt af Blönduósi. Þess ber að geta, að Vatnsnesið liggur afarilla við sókn til næstu verslunarstaða. Er þar um tvo að gera, annaðhvort Hvammstanga, en þangað eru um 40 km. frá Hindisvík, eða Blönduós, og er langt þangað bæði á sjó og landi. Hvorttveggja er örðugt og illfært að flytja afurðir af landi nema sjóleiðis til verslunarstaðarins, og þá til Blönduóss. Er það því ósk hlutaðeigenda að fá löggilta höfn í Hindisvík. Þar eð ætla má, að margir hv. þm. sjeu ókunnugir staðháttum og gætu því hugsað, að þetta væri óþarft eða órjettmætt, sem þó ekki er, skal þess getið, að Hindisvík er annar sá staður við Húnaflóa, sem tiltækilegt er að gera hafskipahöfn.
Árið 1921 var að tilhlutun eiganda Hindisvíkur hin fyrirhugaða höfn mæld og áætluð. Liggur fyrir teikning og lýsing á henni, gerð af Benedikt Jónassyni verkfræðingi. Það sýnist, eftir því sem fyrir liggur, ekkert athugavert vera við hafnargerðina, en aðalatriðið er að sjálfsögðu innsiglingin, og vildi jeg, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp ummæli verkfræðingsins um hana:
„— Hindisvík liggur yst á Vatnsnestánni og sem næst fyrir miðjum Húnaflóa, og hefir víkin að því leyti skilyrði sem höfn, að þar er alveg hrein innsiglingarleið inn miðjan flóann, austan við Fáskrúð upp á víkina, og er eftir sjókortinu að dæma 20 m. dýpi við víkurmynnið.“
Þarna er þá sannanlegt, að innsiglingin er góð og ekkert að athuga við hana.
Einnig má geta þess, að nú liggur fyrir uppmæling á eystri leið inn á Miðfjörð; gæti því verið hjer um tvær leiðir að ræða inn á víkina. Væri þar um engan krók að ræða og leiðin er ugglaus, eftir því sem skipstjórar ætla. Fyrnefndur verkfræðingur, sem hefir gert mælingar og áætlanir um hafnargerðina, telur, að í Hindisvík megi gera góða og trygga höfn til frambúðar með 55 hektara sjávarfleti, og sje þar meira en 5 m. dýpi við lægstu stórstraumsfjöru. Til þess að byrja með þyrfti svo að byggja garð til að fyrirbyggja norðvestan sjógang; mætti af því mikið gagn verða, þótt eftir sem áður yrði víkin opin fyrir norðaustri. En með því að byggja einnig garð að austan væri höfnin fullkomin.
Dýrt yrði þetta að vísu; verkfræðingurinn áætlar hafnargerðina 1200000 krónur, og skal jeg ekki fara út í það hjer.
Í þessu sambandi mætti geta um mælingar, sem gerðar hafa verið annarsstaðar, t. d. á Skagaströnd; yrði miklu dýrara að gera þar höfn. Maður sá, er mældi Hindisvík, taldi hana liggja miklu betur við fyrir sýslubúa en Skagaströnd, þar sem hún er fyrir miðjum Húnaflóa. Segi jeg það sem hans skoðun. En afarþýðingarmikið atriði væri það, ef gera ætti eina höfn fyrir Húnaflóa allan.
Þá er það stórt atriði fyrir sjávarútveginn, að Hindisvík sje löggilt höfn, því að aðalsíldarmiðin eru í svo kölluðum ál, sem liggur aðeins 10 sjómílur þaðan, en 20 sjómílur frá Blönduósi og Skagaströnd. Mátti oft síðastliðið sumar telja 60 síldveiðaskip þarna á miðunum, og væri það skiljanlega til mikilla þæginda fyrir þau að eiga að sækja í höfn svo skamt frá aðalmiðunum.
Skal jeg svo ekki fjölyrða frekar um málið; vænti jeg þess, að hv. deild sjái, að ríkar ástæður liggja til þess, að höfn þessi sje löggilt. Jeg sting ekki upp á, að málinu sje vísað til nefndar; ætla, að það sje ekki venja um slík mál, en mun hinsvegar ekki leggjast á móti því, ef einhver gerir þá uppástungu.