01.03.1924
Neðri deild: 12. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1435 í B-deild Alþingistíðinda. (762)

46. mál, vélgæsla á íslenskum mótorskipum

Pjetur Ottesen:

Jeg vil leyfa mjer að skjóta því að hv. sjávarútvegsnefnd að leita álits Ólafs Sveinssonar vjelfræðings um þetta mál. Frv. það um þetta efni, sem samþykt var á síðasta þingi, var einmitt samið eftir ráðum hans og tillögum.