29.03.1924
Neðri deild: 36. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í B-deild Alþingistíðinda. (818)

100. mál, verðtollur

Þorleifur Jónsson:

Þar sem stjórnin hefir neitað að gefa þá yfirlýsingu, sem jeg óskaði eftir, þá vil jeg mælast til þess við hæstv. forseta, að frv. verði seinkað á dagskránni, svo að flokkurinn geti íhugað málið.