26.03.1924
Neðri deild: 33. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1607 í B-deild Alþingistíðinda. (900)

97. mál, landhelgissektir í gullkrónum

Pjetur Ottesen:

Mjer fyndist ekki óviðeigandi, að þessari till. væri vísað til sjútvn., þar sem hinum frumvörpunum um sektir gegn ólöglegum veiðum hefir verið vísað þangað. En annars finst mjer dálítið einkennilegt að blanda þessu saman við frv. um sektir fyrir ólöglegar botnvörpuveiðar.