26.03.1924
Neðri deild: 33. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1609 í B-deild Alþingistíðinda. (904)

97. mál, landhelgissektir í gullkrónum

Hákon Kristófersson:

Jeg er háttv. þm. Str. (TrÞ) sammála um það að verða ekki valdur að því að tefja fyrir þessu frv., ef mönnum sýnist, að vandræði stafi af því að vísa málinu aftur til nefndar.