11.05.1925
Neðri deild: 77. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2021 í B-deild Alþingistíðinda. (1102)

20. mál, verðtollur

Frsm. (Magnús Jónsson):

Það er eins um þetta mál og það næsta á undan, að nefndin hefir ekki haft fund um breytingar hv. Ed., en jeg hefi haft tal af öllum nefndarmönnum nema einum, og er það einróma vilji nefndarinnar að leggja til, að frv. sje samþykt óbreytt eins og það nú liggur fyrir. Að vísu hefir því verið breytt nokkuð, en það er ekki um að ræða neinar grundvallarbreytingar. Það er sumpart færsla milli flokka og sumpart niðurfelling tegunda. Úr hæsta flokki eru feldar nokkrar tegundir og aðrar settar í staðinn. Yfirleitt eru breytingarnar ekki svo mikilvægar, að það taki því að þvæla málinu milli deilda. Ráðlegg jeg því fyrir nefndarinnar hönd, að það sje samþykt.