21.02.1925
Efri deild: 11. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2324 í B-deild Alþingistíðinda. (1286)
56. mál, fiskveiðasamþyktir og lendingarsjóður
Flm. (Jóhann Jósefsson):
Jeg þarf ekki að vera langorður um mál þetta. Eins og sjest af greinargerðinni, hefi jeg borið frv. fram vegna þess, að fiskiveiðasamþykt sú, er nú gildir í Vestmannaeyjum, er úrelt orðin að því leyti, að hún tekur ekki til báta, sem eru yfir 15 tonn. Auðvitað nær hún til margra báta með því móti, en þó hvergi nærri allra. Þetta er mjög óheppilegt, sjerstaklega um róðrartímann. Þeir bátar, sem samþyktin nær ekki til, geta farið á alt öðrum tíma en hinir, og veldur þetta ekki alllitlum óþægindum og jafnvel misrjetti. Því er nauðsyn á fiskiveiðasamþykt fyrir báta, sem eru yfir 15 tonn. Lög um það efni voru sett 1917, en hingað til hafa þau ekki náð til Vestmannaeyja, líklega af því, að þar var til sjersamþykt áður. Þessum lögum þarf að breyta á þann hátt, að ákvæði þeirra gagnvart sveitarstjórnum og sveitarfjelögum í þessu efni nái einnig til bæjarstjórnar og bæjarfjelags Vestmannaeyja.
Jeg lýk svo máli mínu í þeirri von, að hv. deild taki vel í mál þetta, og leyfi mjer að óska, að því verði vísað til sjútvn.