08.04.1925
Efri deild: 50. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2395 í B-deild Alþingistíðinda. (1460)

61. mál, vörutollur

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Frv. þetta er komið hingað aftur frá hv. Nd. Hefir hún gert á því nokkrar breytingar, bætt við nýjum vörutegundum, sem áður hafa fallið undir aðra liði 2. gr. Fjhn. hefir athugað breytingarnar og fallist á þær. Auðvitað eru nokkrar vörur, sem bætt hefir verið inn í frv., sem orka kunna tvímælis, hvort rjett er að setja þar, en fjhn. gerir það ekki að ágreiningsatriði og leggur til, að frv. sje samþykt.