24.04.1925
Neðri deild: 63. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2709 í B-deild Alþingistíðinda. (1773)
116. mál, gengisskráning og gjaldeyrisverslun
Fjármálaráðherra (JÞ):
Það er aðeins eitt orð um málið eins og það horfir nú við. Eins og þessum umr. er nú komið, vil jeg binda á það, að frv. er ekki borið fram á þann hátt, að ætlast sje, til, að gerðar verði nú ráðstafanir til að ákveða gildi ísl. krónunnar, t. d. að „stýfa“ hana eða þess háttar, heldur er frv. borið fram til að fá framlengingu á gildandi lögum, og er alls ekki borið fram í neinu öðru skyni. Jeg skal geta þess, að frv. var afhent háttv. fjhn. þessarar deildar áður en það kom fram í Ed., svo að hv. fjhn. Nd. hefir þó eitthvað athugað það, þrátt fyrir að það yrði ofan á, að frv. væri fyrst borið fram í Ed. (KlJ: Þetta er satt að vísu).