09.05.1925
Efri deild: 73. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2748 í B-deild Alþingistíðinda. (1796)

116. mál, gengisskráning og gjaldeyrisverslun

Frsm. (Sigurður Eggers):

Jeg þakka hæstv. forsrh. (JM) fyrir ummæli hans um nefndina. Vil jeg taka fram, að úr því bæta á við 2 mönnum í nefndina, þá hefði verið heppilegra, að annar þeirra hefði verið fyrir aðalatvinnuvegina báða, en hinn fyrir neytendur. Jeg býst við, að það hafi og verið þetta, sem hæstv. forsrh. átti við. (Forsrh. JM: Alveg rjett).