28.04.1925
Efri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3043 í B-deild Alþingistíðinda. (1891)

50. mál, tollalög

Fjármálaráðherra (JÞ):

Þetta frv. var afgreitt frá Ed. með öllum heimildum til tekjuauka, sem í því var. En þegar kom til Nd., reyndi jeg að fá frv. samþykt. Forseti var reiðubúinn að taka frv. á dagskrá, en þá strandaði á Framsóknarmönnum. Þeir höfðu það atkvæðamagn í deildinni, að þeir gátu neitað um afbrigði.