04.04.1925
Neðri deild: 51. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3251 í B-deild Alþingistíðinda. (2031)

104. mál, útflutningsgjald

Frsm. (Árni Jónsson):

Jeg ætla ekki að tala frekar fyrir þessu frv., en lýsi yfir því, að jeg mun fella mig við, að því verði vísað til fjhn., enda þótt jeg telji það óþarft, til þess að eiga ekki á hættu, að hv. 3. þm. Reykv. (JakM) fari að tala sig dauðan í þessu máli.