08.05.1925
Neðri deild: 75. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3348 í B-deild Alþingistíðinda. (2125)

81. mál, sáttatilraunir í vinnudeilum

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg skal aðeins taka það fram, að fyrir mjer vakir, að svo sje um búið, að sem mest trygging sje fyrir því, að samkomulag fáist um sáttasemjarann. Ef atvrh. yrði að skipa hann án þess, mætti búast við, að hann fengi litlu áorkað, því að hann mundi verða talinn hlutdrægt skipaður, hvort sem svo væri eða ekki.