15.05.1925
Neðri deild: 82. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3360 í B-deild Alþingistíðinda. (2187)

Starfslok deilda

Bjarni Jónsson:

Jeg vil þakka hæstv. forseta fyrir þær góðu óskir, sem hann flutti þm. Þó að jeg eigi ekki langt heim, getur á skemri leið misfarist, og vil jeg þakka fyrir óskirnar og eins fyrir ummæli hæstv. forseta um samvinnulipurð deildarinnar; en þá ber því ekki að gleyma, að deildin hefir haft góðan forseta, og þó að jeg sje ekki umboðsmaður deildarinnar nje elsti maður hennar, vil jeg leyfa mjer að þakka honum góða forystu og vona, að við fáum að njóta hans mörg þing.

(Deildarmenn tóku undir orð þm. Dala. með því að standa upp).