12.02.1925
Efri deild: 5. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 82 í C-deild Alþingistíðinda. (2251)

17. mál, kvennaskólinn í Reykjavík

Sigurður Jónsson:

Jeg býst við, að nokkrar umræður hefðu orðið um málið nú, hefði ekki staðið svona á. Jeg get ekki sjeð, að hæstv. forsrh. flýti á nokkurn hátt fyrir málinu með því að ræða það núna, heldur væri betra að bíða, þangað til annað frv. gæti komið fram og orðið samferða. Jeg vildi því mælast til, að málið yrði tekið út af dagskrá.