14.04.1925
Efri deild: 51. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í C-deild Alþingistíðinda. (2446)

82. mál, sala á hluta af kaupstaðarlóð Vestmannaeyjabæjar

Sigurður Jónsson:

Eins og jeg hefi oft áður látið í ljós, er jeg með öllu mótfallinn allri sölu á opinberum eignum. Jeg verð því af þeirri ástæðu að vera brtt. þessum andvígur, vegna þess, að jeg lít svo á, að í þeim felist vilyrði fyrir því, að salan nái fram að ganga, að lokinni rannsókn.

Jeg vil taka þetta fram, til þess, að afstaða mín sje hrein og skýr og nái eigi að valda neinum misskilningi.