14.04.1925
Efri deild: 51. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í C-deild Alþingistíðinda. (2449)

82. mál, sala á hluta af kaupstaðarlóð Vestmannaeyjabæjar

Einar Árnason:

Jeg stend aðeins upp að þessu sinni til að svara fyrirspurn frá hæstv. atvrh. (MG) um það, hvernig við hugsum okkur að láta þetta mál koma aftur fyrir þingið. Við flm. athuguðum þetta atriði, en sáum ekki ástæðu til að setja neitt um það í brtt. okkar. Við viljum ekki binda hendur hæstv. stjórnar í þessu efni, en gerðum ráð fyrir, að málið yrði aftur borið fyrir þingið í þingsályktunartillöguformi. Vænti jeg, að hæstv. atvrh. (MG) láti sjer þessa skýringu nægja.