20.04.1925
Neðri deild: 60. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í C-deild Alþingistíðinda. (2464)

82. mál, sala á hluta af kaupstaðarlóð Vestmannaeyjabæjar

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg vil aðeins leyfa mjer að óska, að þessu frv. verði vísað til hv. fjhn., því sú nefnd hafði málið til meðferðar í hv. Ed. Annað hefi jeg ekki ástæðu til að taka fram að þessu sinni, en óska, að fá að hafa tal af hv. nefnd, áður en hún tekur endanlega afstöðu til málsins.