19.03.1925
Neðri deild: 37. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í C-deild Alþingistíðinda. (2509)

33. mál, lærði skólinn

Sigurjón Jónsson:

Jeg vil geta þess, að samþ. var í mentmn., með öllum atkv. gegn mínu, að taka dagskrána aftur. Jeg vil nú samt ekki taka hana upp hjer aftur, en mjer finst ástæða til að ætla, að hún hafi nú verið tekin aftur vegna þess, að tvísýnt væri, að hún yrði samþ. þótt jeg gengi inn á að fylgja dagskránni nú við 2. umr., þá sje jeg ekki ástæðu til þess að sitja eftir færi til þess að bregða fæti fyrir málið, og bind mig ekki við dagskrána, þótt hún komi fram við 3. umr.