09.05.1925
Neðri deild: 76. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1050 í B-deild Alþingistíðinda. (252)

1. mál, fjárlög 1926

Árni Jónsson:

Örfá orð viðvíkjandi brtt., sem jeg flyt á þskj. 486, um styrk til Lúðvíks Jónssonar. Jeg þarf ekki að fjölyrða um þetta; það var rækilega rætt við 3. umr. fjárlagafrv. hjer. En hv. Ed. feldi þennan lið niður. Mjer er nú kunnugt um það, að nefndin í Ed. var ekki á móti þessu í sjálfu sjer, en vænti þess, að Búnaðarfjelagið myndi veita þennan styrk; það væri skylda þess. En nú er mjer kunnugt um, að Búnaðarfjelagið mun ekki veita þennan styrk, og vænti jeg þess, að þessi hv. deild taki þessu ekki ver nú en áður og samþykki brtt.