07.05.1925
Neðri deild: 74. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 628 í C-deild Alþingistíðinda. (2607)
110. mál, aðflutningsbann á heyi
Pjetur Ottesen:
Jeg get sagt það sama og hv. þm. Str. (TrÞ), að ef hæstv. stjórn treystir sjer til þess, sem jeg þó naumast býst við, að ráða fram úr málinu á þessum grundvelli, þannig, að okkar tilgangur náist, þá vil jeg sætta mig við það. En um leið vil jeg leyfa mjer að flytja skriflega brtt. við dagskrá hv. landbn., svohljóðandi: Orðin „nema sjerstakt leyfi stjórnarinnar komi til í hvert sinn“ falli burt.
Eins og kunnugt er, þá geisar þessi hræðilega munn- og klaufasýki í næstu löndum, og því, meðal annars, full þörf strangra öryggisráðstafana gegn sýkingarhættunni.