14.03.1925
Neðri deild: 33. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 883 í C-deild Alþingistíðinda. (2714)

97. mál, ríkisborgararéttur

Forsætisráðherra (JM):

Það er rjett, að íslenskukunnáttu þarf, enda eru vottorð fyrir hendi þar um. Alt of strangir um kunnáttu í málinu ættum vjer þó ekki að vera, því að það er erfitt fyrir útlendinga flesta að læra það til fullnustu.