06.03.1925
Neðri deild: 27. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í C-deild Alþingistíðinda. (2827)
37. mál, bæjarstjórn í Hafnarfirði
Frsm. minnihl. (Magnús Torfason):
Jeg vil lýsa því yfir, út af málinu, er síðast var til umr., að öll þau mál, er snerta þetta efni, eru ennþá í nefnd, nema þetta eina. Mjer fyndist því eðlilegast, að þetta mál væri tekið af dagskrá nú og látið bíða, þar til ákveðið verður, hvort þeim skuli vísað til sjerstakrar milliþinganefndar eða til stjórnarinnar. Jeg geri því að tillögu minni, að málið sje tekið af dagskrá nú.