06.03.1925
Neðri deild: 27. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1031 í C-deild Alþingistíðinda. (2887)

76. mál, bæjargjöld í Reykjavík

Fjármálaráðherra (JÞ):

Hæstv. atvrh. (MG) er því miður bundinn við umr. í hv. Ed. Jeg get ekki gefið fullnaðarsvör fyrir stjórnarinnar hönd, en hún mun vera samþykk áliti hv. 2. þm. Rang. (KIJ) um að taka þurfi málið til gagngerðrar endurskoðunar, og mun hún vilja leggja fram krafta til þess. Hvort stjórnin óskar eftir heimild til að skipa milliþinganefnd eða ekki, því get jeg ekki svarað, en það hefir verið venja, að undirbúa meiriháttar breytingar á þessari löggjöf í milliþinganefnd, og hefir það gefist vel.