16.02.1925
Efri deild: 7. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1151 í C-deild Alþingistíðinda. (3011)
40. mál, bæjarstjórn á Siglufirði
Flm. (Einar Árnason):
Eins og greinargerð þessa frv. ber með sjer, er þetta frv. aðeins partur af frv., sem flutt var á þinginu 1923, um breytingar á bæjarstjórnarlögum Siglufjarðar, en varð ekki útfætt þá. Aðalbreytingin, sem þetta frv. fer fram á, er sú, að gjaldskyldutími þeirra utanbæjarmanna, sem arðsama atvinnu stunda á Siglufirði, er styttur úr 8 vikum niður í 4 vikur.
Aðrar breytingar, sem þetta frv. fer fram á, eru mjög smávægilegar, og einungis afleiðingar af því, að atvinna og viðskiftalíf Siglufjarðar hefir breyst mjög, einkum á hinum síðari árum, eftir það, að lögin um bæjarstjórn á Siglufirði voru samin.
Á þinginu 1923 vildi neðri deild ekki samþ. frv. í þeirri mynd, sem það var lagt fyrir, en afgreiddi til efri deildar þá einu breytingu, sem hjer er aðalatriðið, að í stað 8 vikur komi 4 vikur. Í efri deild strandaði málið, bæði af því, að komið var að þinglokum, og þó sjerstaklega vegna þess, að ráðgert var, að fyrir næsta þing yrði lagt frumvarp, þar sem væri samræmd ýms ákvæði í bæjarstjórnarlögum allra kaupstaðanna.
Nú hefir það eigi orðið ennþá, svo að kunnugt sje, en Siglfirðingar álíta svo mikla nauðsyn þessa máls, að það þoli enga bið lengur, vegna vaxandi breytinga á atvinnulífi bæjarins.
Að öðru leyti álít jeg óþarft að fara fleiri orðum um þetta mál nú að þessu sinni. Vil jeg svo að síðustu mælast til, að þessu frv. verði, að aflokinni þessari umr., vísað til allshn.