02.05.1925
Neðri deild: 70. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í D-deild Alþingistíðinda. (3100)
113. mál, frestun embættisveitinga og sýslana
Jón Baldvinsson:
Af því hv. þm. Str. (TrÞ) gekk inn á till. á þskj. 434, þá vildi jeg segja fáein orð um hana. Í stuttu máli finst mjer það lakari till. en till. hv. þm. Str. (TrÞ), og það er af því, að það er stjórnin, sem eftir þeirri tillögu á að ákveða það, hvort hún gefi þinginu kost á að láta í ljós álit sitt um niðurlagning embætta. Till. hv. þm. Str. (TrÞ) er miklu ákveðnari, og í raun og veru finst mjer það miklu eðlilegra, að þingið ljeti í ljós, hvaða embætti það væru, sem það teldi helst mega missa sig eða sameinst öðrum, heldur en leggja það algerlega á vald stjórnarinnar. Sem sagt, stjórnin getur annars gert það, sem henni sýnist, og án þess að láta neitt koma til þingsins kasta, þar sem hún getur fullyrt við þingið, að ekki sje hægt að komast af án þessa og þessa embættis. Þingið þarf ekkert af því að vita, að hún veitir embættin, og eftir till. er hún sýkn saka, og enginn getur rengt hana um skoðun hennar á nauðsyn þeirra embætta, sem um kann að vera að ræða.