12.05.1925
Sameinað þing: 6. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í D-deild Alþingistíðinda. (3203)

131. mál, steinolíuverslunin

Forseti (JóhJóh):

Jeg skal taka það fram, að þingsköp heimila 9 þingmönnum í Sþ. að heimta að fá það borið undir þingið, hvort slíta skuli umræðum, og ef það verður samþ. með meiri hl. atkv., verður að fara eftir því. Mun jeg því bera hina fram komnu ósk undir atkv.