10.02.1925
Neðri deild: 3. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1142 í B-deild Alþingistíðinda. (321)

3. mál, fjáraukalög 1923

Fjármálaráðherra (JÞ):

Upp í þetta frv. eru teknar allar þær upphæðir, er yfirskoðunarmenn landsreikningsins 1923 telja rjett, að leitað sje aukafjárveitingar fyrir. Að öðru leyti skal vísað til landsreikningsins 1923, og getur því frekari umr. um frv. verið lokið frá minni hendi.

Aðeins vænti jeg þess, að frv. fái að ganga til 2. umr., og geri að till. minni að því verði vísað til fjhn.