14.05.1925
Neðri deild: 80. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í D-deild Alþingistíðinda. (3294)

137. mál, vantraust á núverandi landsstjórn

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg finn enga ástæðu til þess að lengja umr. frekar. Jeg vitna til ummæla hv. þm. A.-Sk. (þorlJ) út af orðum hæstv. fjrh. um afstöðu okkar og skírskota til alls þess, er á þessu þingi hefir gerst. Og get jeg vel við unað að halda viðureigninni áfram við hæstv. stjórn í blöðunum.