08.05.1925
Neðri deild: 75. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 670 í D-deild Alþingistíðinda. (3376)

117. mál, brúargerð á Hvítá í Borgarfirði

Jón Kjartansson:

Jeg vil svara þeirri fyrirspurn hæstv. atvrh. (MG), hvort jeg sje mótfallinn lántöku til brúagerða. Það er síður en svo sje, en jeg vil á ný leggja áherslu á það, að nauðsynin ein á að ráða, hverjar brýr eru gerðar fyrst, en síðan kemur til mála, hvernig eigi að framkvæma verkið, hvort heldur með lántöku eða á annan hátt. En hitt mun jeg alls ekki fallast á, að einstök hjeruð geti farið í kappboð um framkvæmdirnar.