08.05.1925
Neðri deild: 75. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í D-deild Alþingistíðinda. (3379)
117. mál, brúargerð á Hvítá í Borgarfirði
Halldór Stefánsson:
Það er varla til sú samgöngubót hjer á landi, sem brýnni er en að brúa verstu ámar, sem enn eru óbrúaðar. Þar af leiðandi er þörf á að leita allra ráða til þess, að slíkt sje hægt að gera sem allra fyrst, og er skaðinn einber, hvað sem dregst. Ráðið til þess að flýta þessum framkvæmdum hygg jeg að sje einmitt það, að þiggja og taka lán, sem hjer er um að ræða. Þau lán eru þannig, að telja má hættulaust fyrir ríkissjóðinn að taka þau. Og ef mikið framboð er á slíku fje, þá getur ríkissjóður sett þá kosti um lánskjör, að þau verði ekki sambærileg við nokkur önnur lán. Jeg tel þess vegna rjett að þiggja lán, sem bjóðast til brúagerða og annara jafnnauðsynlegra umbóta, svo að hægt sje að framkvæma slík verk sem fyrst, því það er hin mesta nauðsyn. Álít jeg, að framkvæmdir þær ættu að ganga svo ört sem hægt er að koma við að fá þær framkvæmdar. Og jeg get vel hugsað mjer, að taka mætti þó nokkurt tillit til þess, hver örastur er að bjóða fram fje, því það mun vera þó nokkur mælikvarði á þörfina. Jeg veit, að það væri eðlilegast, að öðru jöfnu, að brúa fyrst þær árnar, sem eru mestar torfærur, en fjárframlag er þó fyrsti möguleikinn til framkvæmda, og finst mjer því, að taka megi nokkurt tillit til þess, hverjir bjóða fram fje.
Mín afstaða til þessa máls er þessi, að jeg mundi ekki vilja neita framboði um lán til þess að vinna eitt af nauðsynlegustu verkum til umbóta í landinu; hygg jeg, að mönnum muni því skiljast, hvers vegna jeg mun greiða atkv. þessari fram komnu till. Jeg skal ekki segja, hvort jeg mundi bera fram samskonar till., ef þessi yrði samþykt, en hitt vil jeg segja, að til eru þær ár í mínu kjördæmi, sem afarbrýn nauðsyn er að brúa. T. d. eru í Vopnafirði tvær ár, sem eru hinar verstu torfærur máttu heita ófærar alt síðastl. sumar, svo jafn var vatnselgurinn og vöxturinn í þeim. Þegar sýslumaðurinn var í þingaferðum, um hásumarið, varð hann t. d. að fara fyrir ósana.
Út frá þeirri skoðun minni, er jeg hefi nú lýst, mun jeg greiða atkv. með þessari tillögu.