01.05.1925
Efri deild: 65. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 682 í D-deild Alþingistíðinda. (3390)

121. mál, samgöngubætur milli Reykjavíkur og Suðurláglendisins

Sigurður Eggerz:

Jeg skal að vísu játa, að jeg hefi ekki nýlega athugað fossalöggjöfina, en mjer skildist á ræðu hæstv. atvrh., að hann liti svo á, að stjórnin hefði nú heimild til að veita virkjunarleyfi á fossum án þess að bera þau mál undir þingið En á það vildi jeg leggja áherslu, að ef sjerleyfislöggjöfin yrði ekki samþykt á þessu þingi, þá yrði ekkert sjerleyfi, sem nokkru skiftir, veitt án samþykkis þingsins.