09.03.1925
Neðri deild: 29. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í B-deild Alþingistíðinda. (411)
86. mál, Landhelgissjóður
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg stend ekki upp til þess að rísa á móti frv. þessu. Síður en svo; því jeg get miklu frekar lýst ánægju minni yfir, að það skuli hafa komið fram. Það, sem sjerstaklega gleður mig, er, að hæstv. landsstjórn skuli telja fært að leggja fram 700 þús. kr. nú til byggingar strandvarnaskips, auk þess, sem mjer er kunnugt um úr fjvn., að allmikið fje þarf að leggja fram að auki til rekstrarkostnaðar skipsins. Þetta gleður mig stórlega, því að hjer er um mjög þýðingarmikið mál að ræða fyrir sjávarútveginn.
Það, sem sjerstaklega kom mjer til að standa upp, var, að þegar svona stórt spor er stigið til að styðja sjávarútveginn, þá megi treysta því, að gott samkomulag verði einnig um að koma líku fram fyrir landbúnaðinn, því eins og kunnugt er, liggja fyrir kröfur um stofnun allmyndarlegrar lánsstofnunar fyrir hann, og sömuleiðis koma fram mjög bráðlega kröfur um betra skipulag á kjötsölunni. Jeg vildi því mega vona, að hinn sami velvilji, sem ríkir með frv. þessu, verði og gagnvart þessum kröfum bænda. Og úr því ríkinu er nú talið fært að leggja fram svo mikið fje vegna sjávarútvegsins, þá verði heldur ekki nein fyrirstaða á, að ríkið leggi fram ríflega fje til ræktunarsjóðs, íshúsanna og kæliskips.