25.03.1925
Neðri deild: 42. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1249 í B-deild Alþingistíðinda. (506)

13. mál, smjörlíki

Forseti (BSv):

Þar sem fram hafa komið eindregnar óskir frá tveim háttv. þm., sem eru forvígismenn landbúnaðarins, um að taka málið af dagskrá að þessu sinni, og þar sem óskir þessar hafa ekki sætt andmælum hæstv. atvrh. (MG), enda ekki sjáanlegt, að málið bíði skaða við að verða athugað af þeirri stofnun, sem veitir búnaðarmálum þjóðarinnar forstöðu, þá tek jeg málið hjer með af dagskrá.