09.03.1925
Efri deild: 26. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1266 í B-deild Alþingistíðinda. (526)
28. mál, skráning skipa
Frsm. (Jóhann Jósefsson):
Eins og þskj. 147 ber með sjer, hefir sjútvn. haft þetta frv. til athugunar og fallist á það eins og það er, en þykir viðkunnanlegra, að tilkynt sje um leið, að lög frá 1919, nr. 70, sjeu numin úr gildi, af því að auðsætt er af þessu frv., að þeim er ekki ætlað að gilda lengur. Eins og talað er um í greinargerð þessa frv., eru lögin frá 1919 ekki nógu glögg til þess, að hægt sje að hafa nógu nákvæmt eftirlit með því, að alt sje í lagi viðvíkjandi skráningunni. Að sektarákvæðin sjeu hækkuð, tel jeg rjett. Það er rjett, að gengið sje sem best frá því, að skráning skipa undir íslenskan fána sje ekki yfirborðs-„ceremoniur“ einar. Nefndin leggur til, að frv. verði samþykt, en leyfir sjer að koma með brtt., eða raunar viðauka, við 27. gr., að lög nr. 70, 28. nóv. 1919, um skráning skipa, sjeu úr gildi numin. Þykir henni vissara, að þetta sje tekið fram, svo að enginn vafi geti leikið á, hvaða lög um þetta efni eru í gildi.