08.04.1925
Efri deild: 50. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (579)

21. mál, styrkveiting til handa íslenskum stúdentum við erlenda háskóla

Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):

Sökum þess, að ákveðið hefir verið fundarhlje í þinginu vegna jarðarfarar merks manns, þá ætla jeg að geyma til 3. umr. þær athugasemdir, sem jeg annars hafði ætlað mjer að gera nú. Sömuleiðis tek jeg till. mínar aftur til 3. umr.