06.03.1925
Efri deild: 24. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1419 í B-deild Alþingistíðinda. (689)

12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu

Sigurður Jónsson:

Jeg sje ekki, að brtt. fari fram á annað en það, sem eðlilegt er að hlíta, hver sem í hlut á. Hitt er útrætt mál við Gunnar Egilson. Hjer er aðeins um það að ræða, hvað leggja eigi til grundvallar við ráðningu til svona starfs. Jeg greiði því atkv. með brtt.