27.04.1925
Neðri deild: 65. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1668 í B-deild Alþingistíðinda. (883)

9. mál, vatnsorkusérleyfi

Klemens Jónsson:

Jeg vil geta þess, að eftir því, sem jeg þekki til um það fjelag, sem hjer er um að ræða. tel jeg vafalaust, að það heyri undir 36. gr. frv., 2. lið, en jeg veit ekki, hvernig leyfi til þess er varið eða á hvers háttar forsendum það er bygt, en jeg tel vafalaust, að fjelagið heyri undir þessa grein.