24.04.1925
Neðri deild: 63. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í B-deild Alþingistíðinda. (935)

30. mál, laun embættismanna

Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):

Þar sem brtt. þessum hefir verið útbýtt hjer á fundinum, hefi jeg ekkert um þær að segja frá meiri hl. fjhn. Jeg býst þó ekki við því, að hann sje fylgjandi brtt. á þskj. 379. Um hina brtt., um sveitaprestana, þá álít jeg hana til bóta, en get ekkert sagt um hana fyrir nefndarinnar hönd, því að hún hefir ekki borið sig saman.