28.04.1925
Efri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1736 í B-deild Alþingistíðinda. (941)

30. mál, laun embættismanna

Fjármálaráðherra (JÞ):

Þetta frumvarp lagði jeg fyrir hv. Nd., og hefir það gengið gegnum þá deild með lítilli breytingu, og var í þeirri deild fult samkomulag um málið, og vænti jeg, að svo verði einnig hjer. Jeg tel óþarft að skýra frv. frekar nú við þessa 1. umr.