13.03.1926
Neðri deild: 30. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1532 í B-deild Alþingistíðinda. (1104)

67. mál, veðurstofa

Forseti (BSv):

Hv. frsm. sjútvn. (ÓTh) mæltist til þess, að frv. gengi gengum umræður nefndarlaust, og má það vel verða, en í þingsköpum er svo fyrir mælt, að fjárhagsleg atriði skuli bera undir álit fjárveitinganefnda, og verður því viðkunnanlegra, að sjútvn. leiti álits fjvn. um fjárhagsatriði frv.